Þýska félagið vill leikmann Liverpool

Jarell Quansah.
Jarell Quansah. AFP/Henry Nicholls

Þýska knattspyrnufélagið Bayer Leverkusen er í viðræðum við Liverpool um kaupin á varnarmanninum Jarell Quansah. Sky Sports greinir frá þessu.

Quansah, sem er uppalinn hjá Liverpool, hefur verið í litlu hlutverki hjá Liverpool undanfarið. Hann skrifaði þó undir nýjan fimm ára samning hjá félaginu síðasta október.

Leverkusen vill fá Quansah til að fylla í skarð varnarmannsins Jonathan Tah sem fór frá félaginu í sumar. Talið er að Liverpool geti fengið 30 milljónir punda fyrir Englendinginn. 

Quansah er staddur í Slóvakíu með U21 landsliði Englands en liðið mun mæta Spáni í átta liða úrslitum á laugardaginn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »