Mun fylla í skarð næsta leikmanns Liverpool?

Adrien Truffert í leik með Rennes.
Adrien Truffert í leik með Rennes. AFP/Damien Meyer

Enska knattspyrnufélagið Bournemouth hefur fest kaup á franska vinstri bakverðinum Adrien Truffert frá Rennes í heimalandinu.

Bournemouth greiðir Rennes 11,4 milljónir punda að auki þrjár milljónir í árangurstengdan kostnað fyrir Frakkann.

Truffert á að öllum líkindum að fylla í skarð Milos Kerkez sem er líklegast á leiðinni til Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »