Enska knattspyrnufélagið Tottenham hefur fest kaup á franska sóknarmanninum Mathys Tel frá Bayern München.
Tel, sem er 20 ára, skrifar undir sex ára samning í Norður-Lundúnum en hann spilaði með Tottenham á seinni hluta tímabilsins að láni frá Bayern.
Tottenham greiðir 30 milljónir punda fyrir Frakkann sem skoraði tvö mörk í 11 deildarleikjum fyrir félagið.