Nýi United-maðurinn líkir sér við goðsögn

Matheus Cunha.
Matheus Cunha. Ljósmynd/Manchester United

Matheus Cunha, nýjasti leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur líkt sér við goðsögn félagsins, Wayne Rooney.

Cunha fór í viðtal þegar félagaskiptin voru tilkynnt í gær. Í viðtalinu sagði hann að það væri draumur að rætast að spila fyrir United en hann hefur haldið með liðinu frá því hann var barn.

Hann sagði einnig að hann ætti margt sameiginlegt með Wayne Rooney, markahæsta leikmanni í sögu félagsins.

„Rooney, vá! Það er einhver sem ég held að ég eigi margt sameiginlegt með í mínum leik, því ég gef alltaf allt í þetta,“ sagði Cunha.

„Ég man að hann var númer 10 og allir elska hæfileika leikmanns sem er númer 10 en hann kom alltaf með meira,“ bætti Cunha við en margir telja að Brasilíumaðurinn muni klæðast treyju númer 10 hjá félaginu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »