Vill ekki yfirgefa Manchester United

Rasmus Höjlund.
Rasmus Höjlund. AFP/Henry Nicholls

Danski knattspyrnumaðurinn Rasmus Höjlund hefur engan áhuga á því að yfirgefa herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.

Það er The Athletic sem greinir frá þessu en Höjlund, sem er 22 ára gamall, gekk til liðs við United frá Atalanta sumarið 2023 fyrir 64 milljónir punda.

Hann hefur átt erfitt uppdráttar frá því að Portúgalinn Ruben Amorim tók við stjórnartaumunum hjá félaginu af Erik ten Hag í nóvember á síðasta ári og fengið fá tækifæri í byrjunarliðinu.

Danski framherjinn skoraði aðeins fjögur mörk í 32 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu keppnistímabili en hann hefur verið orðaður við endurkomu til Ítalíu undanfarnar vikur.

Hann er samningsbundinn United til sumarsins 2028 og ætlar, samkvæmt The Athletic, að berjast fyrir sæti sínu hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »