Enski knattspyrnumaðurinn Harvey Elliot er mögulega á förum frá Liverpool.
Elliot var í minna hlutverki hjá Liverpool á síðustu leiktíð en hann byrjaði aðeins tvo leiki með félaginu í deildinni.
„Þetta er staða sem ég og félagið þurfum að ræða um. Ég er 22 ára og verð 23 á næsta tímabili. Ég vil ekki eyða árum af ferli mínum því þetta er stuttur ferill,“ sagði Elliot í viðtali.
Þýski miðjumaðurinn Florian Wirtz er nálægt því að ganga til liðs við Liverpool og mun spilatími Elliot líklega minnka með komu hans.