Liverpool fær ungan markvörð

Armin Pesci er genginn til liðs við Liverpool.
Armin Pesci er genginn til liðs við Liverpool. Ljósmynd/Liverpool

Englandsmeistarar Liverpool hafa gengið frá kaupum á ungverska markverðinum Armin Pesci.

Hinn tvítugi Pesci kemur frá Puskas Akademia í heimalandinu en Liverpool greiðir um 1,5 milljónir punda fyrir hann.

Pesci verður að öllum líkindum þriðji markvörður Liverpool en félagið er nú þegar með Alisson Becker og Giorgi Mamardashvili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »