Grealish ekki með City á HM

Jack Grealish.
Jack Grealish. AFP/Oli Scarff

Enski knattspyrnumaðurinn Jack Grealish verður ekki með Manchester City á heimsmeistaramóti félagsliða samkvæmt The Telegraph.

Grealish, sem er 29 ára, var í litlu hlutverki hjá City á nýafstöðnu tímabili en hann byrjaði aðeins sjö leiki í deildinni.

Þykir því líklegt að Grealish yfirgefi félagið í sumar en hann gekk í raðir City árið 2021 frá Aston Villa.

HM félagsliða fer fram í Bandaríkjunum og hefst 15. júní. Manchester City er með Wydad frá Marokkó, Al Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Juventus frá Ítalíu í riðli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »