Fernandes fer ekki fet

Bruno Fernandes verður áfram í Manchester.
Bruno Fernandes verður áfram í Manchester. AFP/César Manso

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Bruno Fernandes hefur tekið ákvörðun um að vera um kyrrt hjá Manchester United þrátt fyrir að hafa fengið gylliboð frá sádiarabíska félaginu Al-Hilal.

Ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá á X-aðgangi sínum og Ben Jacobs hjá íþróttavefnum Givemesport tekur í sama streng.

Fernandes var með tilboð á borðinu sem hefði fært honum stjarnfræðilegar upphæðir í vasann en eftir að hafa ráðfært sig við fjölskyldu sína ákvað Fernandes, sem er fyrirliði Man. United, að vera um kyrrt.

Al-Hilal var ekki búið að leggja fram formlegt tilboð í Portúgalann sparkvissa en var reiðubúið að greiða þá upphæð sem Man. United hefði beðið um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »