Enska knattspyrnufélagið Brentford er langt komið með að ganga frá kaupunum á írska landsliðsmarkverðinum Caoimhín Kelleher frá Englandsmeisturum Liverpool.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Kelleher verði keyptur á 12,5 milljónir punda, sem gæti hækkað upp í 18 milljónir punda, þrjá milljarða íslenskra króna.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir þá frá því á X-aðgangi sínum að Kelleher, sem er 26 ára gamall, sé þegar búinn að standast læknisskoðun hjá Brentford.
Þar mun hann berjast um markvarðarstöðuna við íslenska landsliðsmarkvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson, en Brentford er að selja núverandi aðalmarkvörð sinn Mark Flekken til Bayer Leverkusen í Hollandi.