Norðurírski varnarmaðurinn Jonny Evans hefur lagt skóna á hilluna en hann er 37 ára gamall.
Manchester United tilkynnti á dögunum að þrír leikmenn væru á förum hjá félaginu, þar á meðal Evans, sem hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Evans gekk óvænt til liðs við uppeldisfélagið Manchester United sumarið 2023 eftir að samningur hans við Leicester City rann út.
Á 19 ára ferli sínum lék Evans einnig með Sunderland, West Bromwich Albion og Royal Antwerp. Hann á að baki 107 landsleiki með Norður-Írlandi.