Manchester United vann endurkomusigur á landsliði Hong Kong, 3:1, í vináttuleik í Hong Kong í dag.
Þrátt fyrir að tímabilinu sé nýlokið á Englandi fór Man. United beint í Asíureisu og tapaði til að mynda 1:0 fyrir úrvalsliði Suðaustur-Asíuríkja í Malasíu fyrr í vikunni.
Í dag kom Juninho liði Hong Kong yfir og voru heimamenn með forystuna í hálfleik. Í síðari hálfleik skipti Man. United öllu byrjunarliði sínu út.
Danski táningurinn Chido Obi Martin skoraði tvívegis í síðari háfleik og annar táningur, Ayden Heaven, innsiglaði sigur Rauðu djöflanna með þriðja marki liðsins í uppbótartíma venjulegs leiktíma.