Ítalski knattspyrnumaðurinn Jorginho hefur yfirgefið Arsenal á frjálsri sölu. Hann mun ganga til liðs við brasilíska félagið Flamengo samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano.
Jorginho, sem er 33 ára gamall miðjumaður, hefur verið á mála hjá Arsenal síðustu tvö ár en hann kom frá Chelsea eftir að vinna Meistaradeildina með félaginu.
Flamengo verður með á heimsmeistaramóti félagsliða í sumar sem hefst þann 15. júní í Bandaríkjunum.