Manchester United baulað af velli

Margir stuðningsmenn Manchester United frá Asíu voru á vellinum.
Margir stuðningsmenn Manchester United frá Asíu voru á vellinum. AFP/Mohd Rasfan

Leikmenn og þjálfarar karlaliðs enska knattspyrnufélagsins Manchester United voru baulaðir af velli eftir tap fyrir stjörnuliði Suðaustur-Asíuríkja, 1:0, í æfingaleik liðanna í Malasíu í dag. 

United er statt í æfingaferð í Malasíu þessa dagana og mætir Hong Kong á föstudaginn kemur. 

United átti afleitt tímabil á Englandi og tapaði nýverið fyrir Tottenham, 1:0, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. 

Félagið á stóran stuðningsmannahóp í Asíu og voru þeir stuðningsmenn ekki parsáttir við frammistöðu liðsins og enn eina tapið og bauluðu það af velli. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »