City leitar að arftaka De Bruyne

Manchester City fylgist grannt með Rayan Cherki.
Manchester City fylgist grannt með Rayan Cherki. AFP/Olivier Chassignole

Manchester City hefur áhuga á því að fá Frakkann Rayan Cherki frá Lyon til liðs við sig. Telegraph Sport greinir frá þessu.

Cherki, sem er 21 árs, hefur staðfest að hann muni yfirgefa Lyon í sumar en hann skoraði 12 mörk og lagði upp 20 í öllum keppnum fyrir félagið á tímabilinu. 

Talið er að Cherki sé með klásúlu í samningi sínum sem gerir liðum kleift að kaupa hann á 20 milljónir punda.

City hefur einnig áhuga á að fá Morgan Gibbs-White, leikmann Nottingham Forest, til að fylla í skarð Kevin De Bruyne sem yfirgefur félagið í sumar. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »