Gleðin er við völd í Liverpoolborg á Englandi þar sem karlalið Liverpool í knattspyrnu fagnar nú Englandsmeistaratitlinum ásamt stuðningsmönnum sínum.
Leikmenn og starfsfólk Liverpool eru á rútum með opnu þaki sem keyra í gegnum borgina við mikinn fögnuð viðstaddra, en talið er að allt að ein milljón manns sé viðstatt fagnaðarlætin.
✊🔴 #LFCChampions pic.twitter.com/tmuZ7REWR5
— Liverpool FC (@LFC) May 26, 2025
Leikmenn liðsins bregða á leik og skoski tónlistarmaðurinn Calvin Harris þeytir skífum.
Í myndskeiði sem félagið birti á X-aðgangi sínum bregður Grikkinn Kostas Tsimikas sér í hlutverk spyrils og ræðir við Curtis Jones og Ungverjann Dominik Szoboszlai.
„Þetta er ótrúlegt, ótrúlegt,“ sagði Szoboszlai sem var að vinna sinn fyrsta bikar með Liverpool.
„Þetta er besta borg heims. Sjáið bara!“ sagði Jones sem var að vinna sinn annan Englandsmeistaratitil með uppeldisfélaginu.
Best city in the world ❤️ pic.twitter.com/LWckOQeIqu
— Liverpool FC (@LFC) May 26, 2025