Varpa ljósi á framtíð Amorims hjá United

Ruben Amorim.
Ruben Amorim. AFP/Oli Scarff

Ruben Amorim verður ekki sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra Manchester United, þrátt fyrir dapurt gengi liðsins á tímabilinu.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Amorim, sem er fertugur, tók við stjórnartaumunum hjá United í nóvember á síðasta ári eftir að Hollendingnum Erik ten Hag var sagt upp störfum.

Árangur liðsins undir stjórn Portúgalans hefur ekki verið upp á marga fiska en liðið tapaði fyrir Tottenham, 1:0, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bilbao í vikunni.

Þá er liðið sem stendur í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og getur ekki endað ofar en í 14. sætinu þegar einni umferð er ólokið.

United leikur ekki í Evrópukeppni á næstu leiktíð og því gæti reynst erfitt fyrir forráðamenn félagsins að sannfæra stærstu bitana á félagaskiptamarkaðnum um að ganga til liðs við félagið í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »