Tottenham er Evrópudeildarmeistari árið 2025 eftir nauman sigur gegn Mancehster United í úrslitaleik keppninnar í Bilbao á Spáni í kvöld.
Þetta er fyrstu Evrópubikar Tottenham í 41 ár en félagið varð síðast Evrópubikarmeistari árið 1984.
Leiknum í kvöld lauk með 1:0-sigri Tottenaham þar sem Luke Shaw, varnarmaður Manchester United, reyndist örlagavaldurinn en hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 42. mínútu.
Pape Sarr fékk þá allan tímann í heiminum til þess að senda boltann fyrir markið frá vinstri. Brennan Johnsen setti fótinn í boltann sem skaust til baka í Luke Shaw og þaðan fór hann í netið.
Reyndist það sigurmark leiksins en United-menn reyndu hvað þeir gátu að jafna metin, án þess þó að ná að skapa sér afgerandi marktækifæri.
Sigurinn þýðir að Tottenham leikur í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en United situr eftir með sárt ennið, leikur ekki í Evrópukeppni á næsta keppnistímabili, og getur ekki endað ofar en 14. sæti úrvalsdeildarinnar en liðið er sem stendur í 16. sætinu.
Tottenham | 1:0 | Man. United |
Opna lýsingu ![]() ![]() |
![]() ![]() |
---|---|---|---|---|
90. mín. +7 mínútur í uppbótartíma. Nægur tími fyrir United til þess að jafna metin. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |