Tekinn úr liðinu eftir rifrildi við liðsfélaga

João Pedro spilaði ekki með Liverpool.
João Pedro spilaði ekki með Liverpool. AFP/Glyn Kirk

Brasilíski knattspyrnumaðurinn João Pedro var ekki með Brighton er liðið sigraði Liverpool, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Ástæðan er sú að hann reifst við liðsfélaga sinn Jan Paul van Hecke á æfingasvæðinu.

The Athletic greinir frá. Pedro var löglegur í leiknum eftir að hann tók út þriggja leikja bann en var þrátt fyrir það ekki í leikmannahópnum.

Samkvæmt miðlinum átti atvikið sér stað á æfingu fyrir leik Brighton gegn Wolves 10. maí. Var Pedro þá enn í banni og var ekki með í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »