Tveir mánuðir án sigurs

Rúben Amorim og lærisveinar hans hafa staðið sig afleitlega í …
Rúben Amorim og lærisveinar hans hafa staðið sig afleitlega í ensku úrvalsdeildinni. AFP/Oli Scarff

Manchester United hefur ekki unnið leik í tvo mánuði í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 

United-liðið tapaði fyrir West Ham, 2:0, á Old Trafford í Manchester í gær og er í 16. sæti deildarinnar með 39 stig. 

United hefur ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 16. mars eða í tvo mánuði. Á þeim tíma hefur United tapað fimm leikjum og gert tvö jafntefli. 

Þrátt fyrir það á United enn möguleika að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð en liðið mætir Tottenham í úrslitaleik Evrópudeildarinnar seinna í mánuðinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »