Valur vann góðan 5:2-sigur á KA í Bestu-deild karla í dag. Spiluðu liðin á KA-vellinum í 13. umferð deildarinnar. Valsmenn eru með 24 stig í 3. sæti en KA er með 12 stig í 11. sæti.
Fyrstu tíu mínúturnar voru liðin að þreifa fyrir sér en svo kom hvirfilbylur á vallarhelmingi KA-manna. Valur skoraði tvö mörk á stuttum kafla og voru bæði mörkin slysalag að hálfu KA-manna. Hrannar Björn Steingrímsson gaf Val fyrra markið með ömurlegri sendingu til baka, beint á Valsmanninn Lúkas Loga Heimisson. Hann renndi boltanum til hliðar á Adam Ægi Pálsson sem gat ekki annað en skorað. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði svo sjálfsmark skömmu síðar þegar boltinn barst fyrir mark KA. Þrír KA-menn virtust ætla í boltann en hann hrökk af Valsmanni í Ásgeir og inn, þrátt fyrir að tveir samherjar hans stæðu á marklínunni. Þetta var lýsandi fyrir leikinn í dag. Í millitíðinni átti Valur skot í stöng og Patrick Pedersen komst líka í dauðafæri.
Í 2:0 stöðu léku Valsmenn á als oddi og hefðu þeir hæglega getað skorað fleiri mörk. Tvö stangarskot og ein vippa ofan á slána bættust á tékklista Valsmanna áður en KA kom sér loks upp völlinn.
Í uppbótatíma fyrri hálfleiks átti KA sína bestu sókn og skilaði hún marki. Bjarni Aðalsteinsson þrumaði boltanum í markið af löngu færi eftir þolinmóða uppbyggingu KA-manna. Staðan var því 2:1 fyrir Val í hálfleik en hún hefði hæglega getað verið 5:0. Það er spurning hvort liðið hafi farið sáttara til búningsklefa.
KA-menn gerðu tvær breytingar í hálfleik og hresstust töluvert. Jóan Símun Edmundsson var hársbreidd frá því að jafna leikinn í upphafi hálfleiksins. Frederik Schram varði gott skot hans. Síðan tók við nokkuð rólegur kafli. Liðin gerðu lítið til að ógna hvoru öðru og efátt benti til að mörkum myndi rigna á lokakafla leiksins. En KA-menn voru ekki hættir að gefa mörk. William Tönning, markvörður KA, tók til sinna ráða og gaf ekki bara eitt, heldur tvö mörk á þremur mínútum. Hann missti boltann yfir sig í hornspyrnu Valsmanna og átti svo skógarhlaup út úr teignum skömmu síðar. Tómas Bent Magnússon og Albin Skoglund þökkuðu pent fyrir sig og allt í einu var staðan orðin 4:1.
Valsmenn voru ekki hættir og bættu við einu marki áður en yfir lauk. Stefán Gísli Stefánsson skoraði með sinni fyrstu snertingu eftir að boltinn barst til hans í vítateig KA. Aftur voru þrír KA-menn í sama boltanum auk markvarðarins en það dugði ekki til að koma í veg fyrir mark. KA átti síðasta markið svo leiknum lauk 5:2 fyrir Val. Hans Viktor Guðmundsson skaraði með langskoti og skömmu síðar átti hann skalla upp í samskeytin, sem Frederik varði örugglega.
Þegar leikurinn er gerður upp þá má segja að Valsmenn hafi unnið mjög sanngjarnt. Þeir voru virkilega óheppnir að nýta ekki færin sem þeir sköpuðu en að sama skapi heppnir að fá nokkur mörk gefins. Lið eins og KA sem er að berjast í botnbaráttu má alls ekki við því að gefa mark, hvað þá mörk. Það jákvæða hjá KA-mönnum verður að teljast að þeir skoruðu í tvígang og taka menn það sjálfsagt með sér inn í næsta leik, sem er gegn KR sunnudaginn 6. júlí.
Valsmenn spila næst í undanúrslitum bikarkeppninnar á þriðjudag og er sá leikur gegn Stjörnunni.