Njarðvíkingar unnu í kvöld sögulegan sigur á nágrönnum sínum, Keflvíkingum, þegar liðin mættust í 1. deild karla á Njarðvíkurvelli.
Njarðvík vann 3:1 og þetta er í fyrsta sinn sem liðið leggur granna sína að velli á Íslandsmóti í meistaraflokki karla. Félögin hafa aðeins sex sinnum mæst áður, í öll skiptin í 1. deild, og Keflavík hafði unnið þrjá leikjanna en hinir þrír endað með jafntefli.
Með þessum sigri eru Njarðvíkingar komnir á topp 1. deildar og eru enn ósigraðir eftir 10 leiki með 20 stig. ÍR er með 18 stig og mætir Grindavík annað kvöld, og getur því náð toppsætinu á ný.
Keflavíkur hefur hins vegar ekki unnið í fimm leikjum í röð í deildinni og situr eftir í sjöunda sætinu með 12 stig.
Keflvíkingar náðu forystunni á 61. mínútu þegar Njarðvíkingar komu boltanum ekki frá markinu eftir fyrirgjöf Ásgeirs Páls Magnússonar frá hægri. Kári Sigfússon fékk hann við vítapunktinn og skaut með jörðunni í vinstra hornið.
Njarðvíkingar jöfnuðu í 1:1 á 77. mínútu. Oumar Diouck átti þá fyrirgjöf frá vinstri og Björn Aron Björnsson tók laglega við boltanum á lofti við vítapunktinn og afgreiddi hann viðstöðulaust í netið.
Aðeins tveimur mínútum síðar náðu svo Njarðvíkingar forystunni þegar Svavar Örn Þórðarson sendi fyrir markið frá hægri og Diouck kastaði sér fram og skallaði boltann glæsilega upp undir þverslána, 2:1.
Á 89. mínútu var síðan Ýmir Hjálmsson felldur í vítateig Keflvíkinga. Dominik Radic fór á vítapunktinn og innsiglaði sigur Njarðvíkinga, 3:1.