KR fékk stóran skell gegn Val, 6:1, í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. KR er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti og lítið hefur gengið í undanförnum leikjum. Þrátt fyrir það hefur Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari liðsins ekki áhyggjur af stöðunni.
„Ég hef ekki áhyggjur af stöðunni því það er mikið eftir. Ef það væri einn leikur eftir væri ég aðeins farinn að hugsa minn gang. Á meðan það eru 15 leikir eftir og sé ákveðna hluti sem eru að þróast vel hef ég ekki áhyggjur. Núna er ég með óbragð í munninum og reyna að láta þetta ekki stjórna skapinu mínu.“
Óskar gaf í skyn í fyrri hluta viðtalsins, sem var birt á mbl.is fyrr í kvöld, að hans menn hafi gefist upp.
„Það er í lagi að svona hlutir gerist einu sinni. Það er í eðli okkar karlmanna að vera ekki sterkir þegar á móti blæs. Við höfum tilhneigingu til að fara auðveldu leiðina og sleppa vel frá hlutunum.
Þegar hlutirnir verða erfiðir höfum við tilhneigingu til að fara í felur. Með því að búa til sterka liðsheild er mögulegt að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aftur. Menn eru meðvitaðir um að þeir köstuðu inn hvíta handklæðinu. Ég yrði hissa ef það gerist aftur á þessu tímabili. Mikilvægast er að menn læri af þessu,“ sagði Óskar.