Viktor Jónsson framherji ÍA var svekktur er hann ræddi við mbl.is eftir tap gegn Stjörnunni, 3:0, á heimavelli í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld. ÍA fékk fullt af færum í leiknum en Stjörnumenn nýttu sín betur.
„Frammistaðan var ekkert slæm þar til við fengum á okkur annað markið. Eftir það förum við í þetta sama og hefur verið á þessu tímabili.
Mér fannst við líklegri eftir fyrsta markið þeirra. Við fáum fínar stöður, skot á mark og sköpuðum okkur dauðafæri í upphafi seinni sem við klikkuðum á.
Þeir skora síðan þetta skítamark og þá sökkvum við ofan í þessa holu sem við erum búnir að vera fastir í á þessu tímabili,“ sagði Viktor um leikinn.
Dean Martin stýrði ÍA í kvöld þar sem Jón Þór Hauksson var rekinn í vikunni. Lárus Orri Sigurðsson hefur störf sem nýr þjálfari ÍA á morgun.
„Síðustu dagar eru búnir að vera þungir og skrítnir. Það hefur samt verið orka í okkur í liðinu. Maður hélt, miðað við hvernig æfingavikan var, að þessi leikur myndi vera öðruvísi.
Hann var það líka, við sýndum fullt jákvætt í fyrri hálfleik. Þetta hafa samt verið skrítnir og leiðinlegir tímar. Við verðum að halda áfram, hafa trú á okkur og hlusta á það sem nýi þjálfarinn kemur með,“ sagði hann.
Viktor var um tíma fyrirliði ÍA undir stjórn Jóns Þórs og var drjúgur fyrir framan mark andstæðinganna undir stjórn gamla landsliðsþjálfarans. Viktor og Jón Þór náðu vel saman.
„Maður finnur fyrir sektarkennd. Við verðum að taka ábyrgð á því sem gekk á þar. Við brugðumst honum. Þetta er maður sem mér þykir rosalega vænt um og hann hefur gert mikið fyrir mig. Ég sé gríðarlega eftir honum,“ sagði Viktor. En hvernig líst honum á Lárus Orra?
„Hann er spennandi. Hann er töff týpa og gæti verið akkúrat það sem við þurfum núna, að fá menn upp á tærnar. Við erum spenntir,“ sagði Viktor.