Þór fékk Selfoss í heimsókn í Bogann á Akureyri í dag í 1. deild karla í fótbolta og úr varð hörkuleikur sem endaði með sigri heimamanna, 2:0.
Þór hafði ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum áður en kom að leiknum í dag og var liðið staðráðið í að ná í þrjú dýrmæt stig. Eftir sigurinn er Þór komið í 4. sæti deildarinnar með 14 stig en Selfoss situr enn á botni deildarinnar með sex stig.
Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins í dag á 33. mínútu með góðu skoti fyrir utan teig Selfyssinga sem söng í netinu. Þetta var áttunda mark Sigfúsar í 1. deildinni í sumar.
Á 74. mínútu bætti Siglfirðingurinn knái Ragnar Óli Ragnarsson við öðru marki hemamanna eftir hornspyrnu sem markvörður Selfyssinga missti af.
Markaskorarinn Sigfús Fannar lét síðan reka sig útaf á 80. mínútu með sitt annað gula spjald.