Stjarnan gekk frá ÍA í upphafi seinni

Stjörnumenn fagna marki á Akranesi í kvöld.
Stjörnumenn fagna marki á Akranesi í kvöld. Ljósmynd/Jón G. Hannesson

Stjarnan gerði góða ferð á Akranes og sigraði ÍA, 3:0, í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Stjarnan fór upp í 20 stig og þriðja sæti með sigrinum. ÍA er sem fyrr á botninum með níu stig.

Andri Rúnar Bjarnason fékk gott færi til að koma Stjörnunni yfir á 11. mínútu þegar Árni Marinó Einarsson í marki ÍA missti boltann klaufalega á hann í teignum en varði síðan vel frá honum í kjölfarið.

Guðmundur Baldvin Nökkvason skaut svo rétt framhjá á 18. mínútu úr markteignum og skömmu síðar átti Benedikt V. Warén skot rétt framhjá utan teigs. Gísli Laxdal Unnarsson fékk besta færi ÍA í fyrri hálfleik er hann slapp í gegn á 37. mínútu en skaut beint á Árna Snæ Ólafsson í marki Stjörnunnar.

Fjórum mínútum síðar komst Stjarnan yfir er Benedikt slapp í gegn eftir langa sendingu fram frá Samúel Kára Friðjónssyni og skoraði einn gegn Árna Marinó. Viktor Jónsson negldi í slána utan teigs á 44. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik.

Ómar Björn Stefánsson fékk dauðafæri til að jafna strax í upphafi seinni hálfleiks en hann lagði boltann framhjá markinu af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Marko Vardic. Erik Sandberg átti skot að marki þremur mínútum síðar en Örvar Logi Örvarsson bjargaði á línu.

Stjarnan refsaði hinum megin mínútu síðar þegar gestirnir tvöfölduðu forskotið með sjálfsmarki. Benedikt Warén átti þá fyrirgjöf frá vinstri og Árni Marinó sló boltann í Baldvin Þór Berndsen og í netið.

Þremur mínútum eftir það var staðan orðin 3:0 þegar Andri Rúnar Bjarnason slapp í gegn eftir sendingu frá Guðmundi Baldvini Nökkvasyni, lék á Árna Marinó og lagði boltann í autt markið.

Stjörnumenn áttu ekki í miklum erfiðleikum með að sigla sigrinum í höfn eftir það og eru Garðbæingar í góðum málum í þriðja sæti.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

ÍA 0:3 Stjarnan opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti þrjár mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »