FH vann nauðsynlegan sigur á Vestra, 2:0, í fyrsta leik tólftu umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í dag.
Eftir leikinn er FH komið úr fallsæti og upp í sjöunda sæti deildarinnar með 14 stig. Vestri er í þriðja sæti með 19.
Sigurður Bjartur Hallsson kom FH-ingum yfir á 32. mínútu með snilldarmarki eftir innkast Björns Daníels Sverrissonar. Þá tók Sigurður á móti boltanum og vippaði honum glæsilega yfir Morten Ohlsen varnarmann Vestra og smellti boltanum síðan í netið, 1:0.
Seinna mark FH kom í byrjun seinni hálfleiks eftir langa sókn. Þá kom Kjartan Kári Halldórsson boltanum fyrir markið þar sem Björn Daníel var og stangaði hann inn, 2:0.
Vestramönnum gekk erfiðlega að skapa sér færi allan leikinn og það bættist ekki eftir seinna mark FH-inga og lauk leiknum því með 2:0-sigri heimamanna.
FH heimsækir KR í næstu umferð eftir viku en Vestri fær ÍA í heimsókn samdægurs.