Þeir hafa enga ástæðu til að kvarta

Gunnar Vatnhamar, númer sex, í baráttunni í kvöld.
Gunnar Vatnhamar, númer sex, í baráttunni í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnar Vatnhamar, færeyski varnarmaðurinn í liði Víkings úr Reykjavík, var kátur er hann ræddi við mbl.is í kvöld enda nýbúinn að skora sigurmark liðsins gegn KR en Víkingur sigraði KR-inga 3:2 í Reykjavíkurslag í kvöld.

„Þetta var skemmtilegur leikur en á sama tíma erfiður leikur. Bæði lið gáfu allt í þetta og sem betur fer nýttum við okkar færi betur,“ sagði Gunnar. Markið hans kom eftir horn frá Gylfa Þór Sigurðssyni.

„Þetta var gott horn hjá Gylfa og ég var réttur maður á réttum stað. Ég þurfti bara að ráðast á boltann og sem betur fer fór hann inn,“ sagði hann.

Staðan í hálfleik var 2:2 eftir stórskemmtilegan fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var rólegri.

„Þetta var upp og niður í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að vera með stjórn. Svoleiðis er þetta stundum, þeir spiluðu líka vel. Í seinni hálfleik vorum við með betri stjórn á leiknum.“

KR skoraði fyrra markið sitt úr víti eftir að Karl Friðleifur Gunnarsson handlék boltann inn í teig og kom í veg fyrir mark. Karl slapp með gult spjald.

„Það var hendi en ég mér fannst hann ekki fara viljandi með höndina í boltann. Hann teygði ekki höndina út og var óheppinn. Þeir fengu víti, gult spjald og mark og hafa enga ástæðu til að kvarta.“

Víkingur náði eins stig forskoti á Breiðablik með sigrinum í kvöld og stefnir í æsispennandi toppbaráttu.

„Þetta er spennandi. Það er skemmtilegra þegar þetta er svona jafnt. Við verðum að halda áfram því þeir eru að spila vel. Við verðum að halda áfram að vinna,“ sagði Gunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »