Nadía skaut Val í undanúrslit

Ríkjandi bikarmeistarar Vals tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta með sigri á Þrótti í Reykjavíkurslag á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Urðu lokatölur 2:1.

Valur er annað liðið á eftir ÍBV sem tryggir sér sætið í undanúrslitum. Átta liða úrslitunum lýkur á morgun með leik Þórs/KA og FH annars vegar og Breiðabliks og HK hins vegar.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var nálægt því að koma Val yfir á 5. mínútu er hún átti skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Fanndísi Friðriksdóttur frá vinstri. Mollee Swift í marki Þróttar varði hins vegar vel.

Sex mínútum síðar átti Katie Cousins, fyrrverandi leikmaður Vals, skot rétt yfir utan teigs og voru upphafsmínúturnar býsna fjörlegar.

Þróttarinn Þórdís Elva Ágústsdóttir með boltann á Hlíðarenda í kvöld.
Þróttarinn Þórdís Elva Ágústsdóttir með boltann á Hlíðarenda í kvöld. mbl.is/Eggert

Fyrsta markið kom á 21. mínútu og það gerði Ragnheiður með glæsilegu skoti utan teigs eftir sendingu frá Fanndísi. Fjórum mínútum síðar átti Jelena Tinna Kujundzic fastan skalla í stöngina og örskömmu eftir það bjargaði Sæunn Björnsdóttir á línu frá Fanndísi hinum megin.

Þróttur átti þrjár síðustu tilraunir fyrri hálfleiks en um þrjú langskot var að ræða. Þórdís Elva Ágústsdóttir átti tvær þeirra og Sæunn Björnsdóttir eina.

Þórdís setti boltann aðeins yfir fyrst og svo rataði boltinn beint í fangið á Tinnu Brá Magnúsdóttur í marki Vals í seinni tveimur tilraununum og var staðan í leikhléi því 1:0.

Þróttarar voru mun líklegri í upphafi seinni hálfleiks og Caroline Murray komst í tvígang nálægt því að jafna með hættulegum skotum utan teigs. Fyrst varði Tinna frá henni og síðan setti hún boltann rétt framhjá.

Jelena Tinna Kujundzic varnarmaður Þróttar og Berglind Rós Ágústsdóttir miðjumaður …
Jelena Tinna Kujundzic varnarmaður Þróttar og Berglind Rós Ágústsdóttir miðjumaður Vals eigast við á Hlíðarenda í kvöld. mbl.is/Eggert

Tinna kom engum vörnum við á 67. mínútu þegar Freyja Karín Þorvarðardóttir jafnaði. Lillý Rut Hlynsdóttir átti þá slaka hreinun frá marki Vals og Freyja refsaði með glæsilegu skoti upp í vinkilinn úr teignum.

Þórdís Elva fékk úrvalsfæri til að koma Þrótti yfir á 73. mínútu en hún skaut framhjá af stuttu færi eftir að hún vann boltann af Natöshu Anasi í teignum.

Þrátt fyrir nokkra pressu Þróttara voru það Valskonur sem komust í 2:1 á 85. mínútu þegar Nadía Atladóttir skoraði úr markteignum eftir glæsilegan undirbúning hjá Elísu Viðarsdóttur á hægri kantinum. Reyndist það sigurmarkið.

Valur 2:1 Þróttur R. opna loka
90. mín. Sæunn virðist vera að ná í horn en markspyrna dæmd. Valskonur ansi nálægt því að sigla þessu í höfn. Tvær mínútur eftir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »