Þróttur vann góðan 2:0-sigur á liði Þórs/KA í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í Laugardalnum í dag.
Það var María Eva Eyjólfsdóttir sem skoraði fyrra mark Þróttar á 39. mínútu leiksins en Freyja Karín Þorvarðardóttir skoraði það seinna á 56. mínútu leiksins.
Þessi sigur þýðir að Þróttur er áfram á toppi deildarinnar eftir áttundu umferðina en liðið er komið með 22 stig eftir átta leiki, þremur meira en Breiðablik sem jafnaði Þrótt að stigum fyrr í dag. Þór/KA er í fjórða sæti deildarinnar með 15 stig.
Það var Kimberly Dóra Hjálmarsdóttir, leikmaður Þórs/KA, sem átti fyrstu marktilraun dagsins í Laugardalnum en strax á 2. mínútu leiksins átti hún skot sem Molle Swift varði örugglega. Eftir þetta skiptust liðin á að sækja án þess þó að skapa alvöru marktækifæri.
Það var ekki fyrr en á 26. mínútu að hlutir fóru að gerast en þá átti Mist Funadóttir fína sendingu fyrir markið og Jessica Grace Berlin, markvörður Þórs/KA, kýldi boltann út í teig en þar var Freyja Karín Þorvarðardóttir en skot hennar fór framhjá.
Á 39. mínútu leiksins átti Caroline Murray fína sendingu fyrir mark Þórs/KA og aftur var Jessica í vandræðum en náði á endanum að koma boltanum út af í horn. Hornið var tekið stutt á Murray og hún setti boltann fyrir markið. Jessica missti alveg af boltanum og hann datt fyrir fætur Maríu Evu Eyjólfsdóttur sem átti ekki í miklum vandræðum með að smella boltanum í netið og koma Þrótti í 1:0 forystu.
Aðeins tveimur mínútum síðar munaði litlu að Sandra María Jessen næði að jafna metin en skot hennar var varið á línunni. Stuttu síðar var flautað til hálfleiks.
Í seinni hálfleik voru það leikmenn Þórs/KA sem byrjuðu með látum. Strax á 46. mínútu átti Kimberly Dóra skot í varnarmann og þaðan fór boltinn út af. Hornspyrnan rataði beint á Agnesi Birtu Stefánsdóttur en skalli hennar fór yfir markið.
Á 56. mínútu ákvað Freyja Karín Þorvarðardóttir að taka málin í sínar hendur og tók sprett með boltann frá miðlínu vallarins og þegar hún var komin inn á teiginn lét hún vaða á markið en skotið fór beint á Jessicu Grace Berlin í marki Þórs/KA en á einhvern óskiljanlegan hátt fór boltinn í netið. Boltinn fór hreinlega í gegnum Jessicu sem vill væntanlega gleyma þessum leik sem fyrst. Hún var heldur alls ekki sannfærandi í fyrra marki Þróttara í leiknum.
Á 66. mínútu fékk Sandra María Jessen frábært tækifæri til að minnka muninn fyrir Þór/KA en hún fékk þá góða sendingu inn fyrir vörn Þróttar en Mollee Swift kom vel út á móti henni og varði skotið frá henni mjög vel. Stuttu síðar átti Margrét Árnadóttir tvær góðar skottilraunir að marki Þróttar en í bæði skiptin varði Mollee vel frá henni. Á 75. mínútu kom Mollee aftur til bjargar en þá varði hún skot frá varamanninum Kareni Maríu Sigurgeirsdóttur.
Á 76. mínútu leiksins náði Jessica Grace Berlin aðeins að kvitta fyrir fyrri mistök í leiknum en þá varði hún virkilega vel frá Þórdísi Elvu Ágústsdóttur en hún skallaði boltann að marki eftir hornspyrnu. Meira gerðist ekki í leiknum og lokatölur voru því 2:0 fyrir Þrótt.
Bæði Þróttur og Þór/KA eru komin í 8-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu en næstu leikir liðanna eru einmitt í þeirri keppni. Þróttur heimsækir lið Vals að Hlíðarenda á miðvikudagskvöldið klukkan 19:30 en Þór/KA spilar við FH í Boganum á fimmtudaginn klukkan 17:30.