Ægir stöðvaði sigurgöngu Þróttar úr Vogum í 2. deild karla í knattspyrnu með því að vinna leik liðanna á Vatnsleysuströnd í gærkvöld, 2:1.
Þróttarar höfðu unnið fimm fyrstu leikina og voru með fimm stiga forskot á næstu lið, þar á meðal Ægi, en nú er Þróttur með 15 stig og Ægir 13 í tveimur efstu sætunum.
Rúnar Ingi Eysteinsson kom Þrótti yfir í lok fyrri hálfleiks en Atli Rafn Guðbjartsson jafnaði fyrir Ægi 20 mínútum fyrir leikslok og Sigurður Óli Guðjónsson skoraði síðan sigurmark Þorlákshafnarbúa í uppbótartímanum.
Haukar og Víkingur frá Ólafsvík skildu jöfn á Ásvöllum, 1:1. Kwame Quee kom Ólsurum yfir um miðjan fyrri hálfleik en Haukarnir jöfnuðu með sjálfsmarki þegar uppbótartíminn var að hefjast.
Haukar eru með 11 stig í fjórða sæti og Víkingar sex stig í áttunda sæti.
Grótta vann Garðabæjarliðið KFG, 3:0, á Seltjarnarnesi en þar missti KFG Helga Snæ Agnarsson af velli seint í fyrri hálfleik með rautt spjald og Grótta nýtti sér liðsmuninn í síðari hálfleik. Björgvin Brimi Andrésson kom Gróttu yfir á 57. mínútu og þeir Kristófer Dan Þórðarson og Björgvin Stefánsson bættu við mörkum.
Grótta er með 11 stig í þriðja sæti en KFG er með fjögur stig í ellefta og næstneðsta sæti.
Dalvík/Reynir gerði góða ferð á Blönduós og vann þar Kormák/Hvöt 1:0. Sævar Þór Fylkisson skoraði sigurmarkið strax á 11. mínútu.
Dalvík/Reynir er með tíu stig í fimmta sæti og Kormákur/Hvöt níu stig í sjötta sæti.
Kári vann Víði, 2:1, í nýliðaslag í Akraneshöllinni. Uros Jemovic kom Víðismönnum yfir í byrjun síðari hálfleiks. Finnbogi Laxdal Aðalsteinsson jafnaði fyrir Skagastrákana korteri fyrir leikslok og Marinó Hilmar Ásgeirsson skoraði sigurmarkið skömmu síðar.
Kári fór þar með upp í níunda sætið með sex stig en Víðir er með fimm stig í tíunda sætinu.
Umferðinni lauk í kvöld með Austurlandsslag Hattar/Hugins og KFA á Fellavelli en hann endaði 1:1. Marteinn Már Sverrisson kom KFA yfir á 32. mínútu en Danilo Milenkovic jafnaði fyrir Múlaþingsliðið sjö mínútum síðar og þar við sat.
KFA er með átta stig í sjöunda sætinu en Höttur/Huginn situr á botninum með tvö stig og er eina liðið sem hefur ekki unnið leik í fyrstu sex umferðunum.