Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola tap, 2:0, gegn því franska í lokaleik sínum í 2. riðli í A-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli í kvöld.
Ísland endar í þriðja sæti riðilsins og fer í umspil um að halda sæti sínu í A-deildinni. Ísland mætir Norður-Írlandi, Finnlandi, Írlandi eða Tékklandi í umspilinu.
Franska liðið var nálægt því að komast yfir á 13. mínútu þegar Sandie Toletti átti hættulegt skot í teignum. Boltinn stefndi í bláhornið fjær en Cecilía Rán Rúnarsdóttir varð glæsilega í íslenska markinu.
Hlín Eiríksdóttir fékk fyrsta færi Íslands á 20. mínútu er hún átti gott skot í teignum eftir sendingu frá Sveindísi Jane Jónsdóttur en Pauline Peyraud-Magnin varði vel. Fjórum mínútum síðar átti Marie-Antoinette Katoto hættulegt skot en Cecilía varði aftur vel.
Ísland fékk dauðafæri til að skora fyrsta markið á 36. mínútu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lét vaða úr aukaspyrnu af löngu færi, Peyraud-Magnin varði og Glódís Perla Viggósdóttir var fyrst í boltann í teignum í kjölfarið en setti boltann framhjá á meðan markvörðurinn lá í grasinu.
Kessya Bussy slapp inn fyrir íslensku vörnina á lokamínútu fyrri hálfleiks en enn varði Cecilía vel. Nokkrum sekúndum áttu Sveindís Jane fast skot hinum megin en Peyraud-Magnin varði vel og var staðan markalaus í hálfleik, þrátt fyrir færi beggja liða.
Franska liðið byrjaði betur í seinni hálfleik og þær Kessya Bussy og Oriane Jean-Francois áttu báðar hættulegar tilraunir á fyrstu mínútunum en skutu rétt framhjá úr teignum.
Íslenska liðinu gekk illa að skapa færi í seinni hálfleik og kom fyrsta tilraunin á 70. mínútu þegar Karólína Lea skaut nokkuð yfir úr fínu skotfæri rétt utan teigs.
Fjórum mínútum seinna komst Frakkland yfir. Sandy Baltimore skoraði þá af stuttu færi í annarri tilraun eftir að Cecilía varði frá henni. Varamaðurinn Grace Geyoro bætti við öðru markinu á 85. mínútu er hún slapp í gegn og lagði boltann framhjá Cecilíu.
Liðin sköpuðu sér ekki mikið eftir það og tveggja marka tap gegn afar sterku frönsku liði staðreynd.