Fyrsta landslið Íslands mætti á völlinn

Kvennalandslið Íslands 1981 á Laugardalsvellinum í kvöld.
Kvennalandslið Íslands 1981 á Laugardalsvellinum í kvöld. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Fyrsta kvennalandslið Íslands í knattspyrnu mætti á Laugardalsvöllinn í kvöld en landsliðskonurnar gömlu voru heiðursgestir á leik Íslands og Frakklands.

Þær stilltu sér upp áður en liðin gengu inn á völlinn fyrir leikinn og íslensku landsliðskonurnar í dag gengu síðan á röðina og heilsuðu þeim.

Þetta lið mætti Skotum á útivelli í Dumbarton þann 20. september árið 1981 og tapaði naumlega, 3:2. Bryndís Einarsdóttir og Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoruðu mörkin.

Lið Íslands var þannig skipað í leiknum í Skotlandi:

Landsliðskonurnar 2025 heilsa landsliðskonunum 1981.
Landsliðskonurnar 2025 heilsa landsliðskonunum 1981. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Byrjunarliðið:
Guðríður Guðjónsdóttir
Jónína Kristjánsdóttir
Rósa Áslaug Valdimarsdóttir fyrirliði
Brynja Guðjónsdóttir
Kristín Aðalsteinsdóttir
Ragnheiður Víkingsdóttir
Ásta María Reynisdóttir
Magnea Helga Magnúsdóttir
Sigrún Cora Barker
Bryndís Einarsdóttir
Ásta B. Gunnlaugsdóttir

Varamenn:
Hildur Harðardóttir
Ragnheiður Jónasdóttir
Kristín Reynisdóttir
Bryndís Valsdóttir
Svava Tryggvadóttir

Þjálfarar:
Guðmundur Þórðarson
Sigurður Hannesson

Liðið var ungt en sex í byrjunarliðinu voru á aldrinum 17 til 19 ára, sem og fjórar af þeim fimm sem voru á varamannabekknum. Kristín Aðalsteinsdóttir var aldursforsetinn í liðinu, 24 ára gömul.

mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
OSZAR »