Þriðji sigur Valsmanna í röð

Bjarni Mark Antonsson úr Val og Israel Garcia hjá Fram …
Bjarni Mark Antonsson úr Val og Israel Garcia hjá Fram eigast við í kvöld. mbl.is/Karítas

Valur fór upp í þriðja sæti Bestu deildar karla í fótbolta er liðið sigraði Fram, 2:1, á heimavelli sínum í lokaleik tíundu umferðarinnar á Hlíðarenda í kvöld.

Valur er með þrjá sigra í röð og með 18 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Víkings. Fram er áfram í áttunda sæti með tólf stig.

Lítið var um opin færi í fyrri hálfleik. Israel Garcia og Kyle McLagan reyndu báðir skot utan teigs hjá Fram á fyrstu tíu mínútunum en hittu ekki á markið. Vuk Oskar Dimitrijevic átti svo skot framhjá á 22. mínútu.

Tryggvi Hrafn Haraldsson átti bæsta færi Vals í fyrri hálfleik er hann slapp í gegn eftir sendingu frá Patick Pedersen en Kyle McLagan var snöggur til baka og bjargaði glæsilega. Var staðan í hálfleik því markalaus.

Það tók Valsmenn aðeins sex mínútur að breyta því í seinni hálfleik. Bjarni Mark Antonsson vann þá boltann á miðsvæðinu, renndi honum á Patrick Pedersen og sá danski skoraði af öryggi framhjá Viktori Frey Sigurðssyni í marki Fram.

Framarar voru sterkari eftir markið og jöfnunarmarkið kom á 64. mínútu. Það gerði Vuk Oskar Dimitrijevic með glæsilegu skoti vinstra megin í teignum upp í samskeytin fjær.

Staðan var aðeins jöfn í fjórar mínútur því Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Val aftur yfir á 68. mínútu. Hann slapp þá í gegn eftir sendingu frá Frederik Schram í marki Vals og nýtti sér slæm mistök Ólivers Elísar Hlynssonar sem kom inn á sem varamaður stuttu fyrr og skoraði.

Margar skiptingar fylgdu markinu og komst hvorugt liðið almennilega í takt við leikinn í kjölfarið. Að lokum sigldu Valsmenn sigrinum í höfn.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Valur 2:1 Fram opna loka
90. mín. Jónatan Ingi Jónsson (Valur) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »