Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tók sína fyrstu æfingu á nýjum Laugardalsvelli í dag. Liðið mætir Frakklandi í A-deild Þjóðadeildarinnar á morgun.
„Hann er bara geggjaður, ótrúlega flottur. Ég hef aldrei æft á svona góðum Laugardalsvelli. Ég held að aðstæðurnar á grasinu verði upp á tíu þótt það verði kannski ekki kjörveður upp á vind og svoleiðis,“ sagði fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir um nýja völlinn á blaðamannafundi í dag.
Framkvæmdir á vellinum hafa staðið í vetur og er komið nýtt blendingsgras sem er einnig kallað „hybrid-gras“ og sömuleiðis var sett hitunarkerfi undir völlinn.
„Maður var úti í sendingaræfingu og allar sendingar fóru akkúrat þar sem maður vildi að þær færu. Boltinn rann vel og maður getur ekki beðið,“ bætti Glódís við.
Leikurinn gegn Frökkum hefst klukkan 18.00 á morgun. Ísland þarf á sigri að halda til að tryggja sér áfram sæti í A-deildinni.