„Við ætlum að vinna þær,“ sagði landsliðskonan Guðný Árnadóttir í samtali við mbl.is fyrir lokaleik Íslands gegn Frakklandi í 2. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.
Ísland er enn án sigurs eftir fimm leiki en liðið hefur gert fjögur jafntefli og er í þriðja sæti. Allt getur gerst í lokaumferðinni en Ísland getur hafnað í öðru, þriðja eða fjórða sæti riðilsins.
„Við erum mjög spenntar að spila á nýju grasi á Laugardalsvelli og taka á móti stórþjóð eins og Frakklandi. Það er mikil spenna fyrir þessu.
Við fórum niður að skoða völlinn og þetta er slétt teppi, lítur mjög vel út. Við erum spenntar að spila á því.“
Hvernig er undirbúningurinn fyrir svona leik?
„Við vorum að koma til Íslands og undirbúum okkur fyrir þetta verkefni á svipaðan hátt og alltaf. Við leikgreinum okkar leik og þeirra og sjáum hvar styrkleikar okkar liggja.
Það er stutt síðan við spiluðum við þær síðast þannig við getum skoðað þann leik. Við fengum fullt af færum þar og hefðum jafnvel getað fengið betri úrslit, sem við ætlum okkur núna.
Við vitum að við getum skorað gegn svona sterkum liðum sem er gott. Þá verðum við bara að standa vörnina.“
Frakkland er búið að vinna riðilinn með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Guðný telur að orkan eigi eftir að vera meiri í íslenska liðinu.
„Þær eru búnar að vinna riðilinn nokkuð afgerandi og eru síðan að koma í einhvern skítakulda á Íslandi og ég held að þetta sé ekki mest spennandi verkefni fyrir þær akkúrat núna.
Við þurfum að einbeita okkur að okkar leik og vinna þær bara.“