Leikmenn Reynis frá Hellissandi og Uppsveita minntust Víglundar Þorsteinssonar, drengsins sem lést af slysförum í Hvítá í Árnessýslu í síðustu viku, þegar liðin mættust í 5. deild karla í fótbolta í Ólafsvík í dag.
Lið Uppsveita skýrir frá þessu á Facebook-síðu sinni en Víglundur var iðkandi í yngri flokkum félagsins og stuðningsmaður liðsins, sem lék með sorgarbönd í leiknum.
Uppsveitir, sem unnu leikinn 2:1, þakka jafnframt Reynismönnum fyrir góðar móttökur og fyrir að sameinast þeim í einnar mínútu þögn fyrir leikinn.