Njarðvík varð þriðja liðið til að komast á topp 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld og Grindvíkingar styrktu stöðu sína en bæði Suðurnesjaliðin unnu stórsigra á útivelli.
Njarðvík er með 11 stig eins og ÍR en er efst á betri markatölu. Þór og Þróttur R. eru með 10 stig, Keflavík 9 og HK 8 í næstu sætum.
Grindvíkingar eru komnir með 7 stig en Leiknismenn sitja eftir á botni deildarinnar með eitt stig.
Njarðvíkingar fóru austur á Selfoss og sigruðu þar heimamenn 4:0. Oumar Diouck skoraði tvö markanna og þeir Amin Cosic og Dominik Radic eitt hvor.
Grindvíkingar sóttu Leikni heim í Efra-Breiðholtið og þar var mikið skorað en lokatölur urðu 6:2 fyrir Grindavík.
Staðan var orðin 6:0 eftir rúmar 70 mínútur en Breki Þór Hermannsson og Adam Árni Róbertsson skoruðu tvö mörk hvor, Kristófer Máni Pálsson og Sindri Þór Guðmundsson eitt hvor.
Á lokakafla leiksins náðu Shkelzen Veseli og Grindvíkingurinn Dagur Ingi Hammer að minnka muninn fyrir Leiknismenn.