HK er búið að jafna ÍBV að stigum í toppsæti 1. deildar kvenna í knattspyrnu eftir sigur á Keflavík, 1:0, í fimmtu umferðinni í Keflavík í kvöld.
HK er með tólf stig í öðru sæti, jafnmörg og ÍBV en verri markatölu. Keflavík er í áttunda og níunda sæti með ÍA en liðin eru bæði með fimm stig og sömu markatölu.
Sigurmark HK skoraði Valgerður Lilja Arnarsdóttir á 83. mínútu leiksins.
Grótta vann ÍA á dramatískan hátt, 2:1, á Seltjarnarnesi. Með sigrinum fór Grótta yfir ÍA og alla leið upp í fimmta sæti deildarinnar með sex stig.
Elizabeth Bueckers kom ÍA yfir á fjórðu mínútu leiksins en Hulda Ösp Ágústsdóttir jafnaði metin fyrir Gróttu á 67. mínútu, 1:1.
Sigurmarkið skoraði síðan Rebekka Sif Brynjarsdóttir úr vítaspyrnu á þriðju mínútu uppbótartíma seinni hálfleiksins.
Grindavík/Njarðvík vann þá góðan útisigur á Haukum, 2:1, á Ásvöllum.
Grindavík/Njarðvík er í þriðja sæti með tíu stig en Haukakonur eru í sjöunda með sex.
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir kom Haukum yfir í fyrri hálfleik en Brookelynn Entz skoraði tvö mörk með fimm mínútna millibili í seinni hálfleik og tryggði gestaliðinu sigurinn.
KR er komið með tíu stig í fjórða sæti eftir sigur á Fylki, 3:1, í Vesturbænum.
Katla Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk fyrir KR og Rakel Grétarsdóttir hitt. Hjá Fylki skoraði Emma Björt Arnarsdóttir á 83. mínútu í stöðunni 3:0 fyrir KR.
Fylkir er í sjötta sæti með sex stig.