Víkingar á toppinn og Skagamenn á botninn

Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar fagna Stíg Diljan Þórðarsyni …
Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar fagna Stíg Diljan Þórðarsyni eftir að hann kom Víkingum yfir í kvöld. mbl.is/Ólafur Árdal

Víkingar sigruðu Skagamenn, 2:1, í Bestu deild karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld.

Víkingar eru þar með komnir upp fyrir Breiðablik og í efsta sætið með 17 stig en Skagamenn sitja eftir á botninum með 6 stig. En þetta leit ekki út fyrir að vera viðureign efsta og neðsta liðsins.

Víkingar hófu nánast leikinn á því að missa mann af velli því varnarmaðurinn Sveinn Gísli Þorkelsson þurfti að yfirgefa völlinn meiddur eftir aðeins fjórar mínútur.

Það sló Víkingana ekki út af laginu og á 9. mínútu náðu þeir forystunni. Valdimar Þór Ingimundarson sendi fyrir markið frá hægri endamörkum, Helgi Guðjónsson fékk boltann vinstra megin og sendi inn í markteiginn þar sem Stígur Diljan Þórðarson renndi sér á hann og skoraði sitt fyrsta deildarmark á ferlinum, 1:0.

Skagamenn komust ágætlega inn í leikinn og bæði Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Gísli Eyland áttu hörkuskot yfir mark Víkings.

En Víkingar sýndu gæðin í sínum sóknum og á 33. mínútu kom svipað mark. Valdimar átti fasta fyrirgjöf frá hægri með jörðinni og nú var það Helgi sem afgreiddi boltann viðstöðulaust í netið af markteignum, 2:0.

Valdimar Þór Ingimundarson lék mjög vel með Víkingum í kvöld, …
Valdimar Þór Ingimundarson lék mjög vel með Víkingum í kvöld, var maðurinn á bakvið bæði mörkin og lagði upp nánast öll færi liðsins í leiknum. mbl.is/Ólafur Árdal

Fjórum mínútum síðar munaði engu að Helgi skoraði aftur eftir svipaða fyrirgjöf Valdimars frá hægri.

Rúnar Már lét aftur til sín taka með langskoti á 40. mínútu þegar hann átti óvæntan þrumufleyg af 30 metra færi og boltinn small í stöng Víkingsmarksins.

Strax í næstu sókn komst Valdimar einn gegn Árna Marinó Einarssyni markverði ÍA sem varði vel í horn.

Uppúr hornspyrnu Víkinganna skoruðu Skagamenn á 43. mínútu! Eftir skot Daníels Hafsteinssonar í varnarmann þeyttist boltinn fram, Haukur Andri Haraldsson var allt í einu kominn einn innfyrir vörn Víkings þó hann væri á miðjum vallarhelmingi ÍA. Hann brunaði upp allan völl með Víkingana á hælunum og skoraði af yfirvegun, 2:1.

Lokaorðið í bráðfjörugum fyrri hálfleik átti Nikolaj Hansen sem skallaði rétt framhjá marki ÍA eftir enn eina fyrirgjöf Valdimars frá hægri. Staðan 2:1 í hálfleik.

Rúnar Már Sigurjónsson og Davíð Þór Atlason í leiknum í …
Rúnar Már Sigurjónsson og Davíð Þór Atlason í leiknum í kvöld. mbl.is/Ólafur Árdal

Eftir líflegar upphafsmínútur síðari hálfleiks og hálffæri á báða bóga munaði minnstu að Skagamenn jöfnuðu eftir hraða sókn á 57. mínútu þegar Marko Vardic skaut í utanverða stöngina úr góðu færi.

Skaut í báðar stangirnar

Stígur Diljan var hársbreidd frá því að skora þriðja mark Víkings á 64. mínútu þegar hann brunaði inn í vítateiginn vinstra megin og skaut í vinstri stöngina, þaðan skaust boltinn yfir í hægri stöngina og út!

Stígur var aftur á ferð þremur mínútum síðar þegar hann skaut yfir markið af um tveggja metra færi eftir sendingu Valdimars frá hægri. Sannkallað dauðafæri og drengurinn óheppinn að skora ekki tvisvar á þremur mínútum.

Víkingar voru líklegri til að bæta við en Skagamenn að jafna þrátt fyrir mikla baráttu þeirra gulklæddu og fínar sóknartilraunir.

Viktor Örlygur Andrason slapp einn gegn Árna Marinó markverði á 81. mínútu, nýkominn inn á sem varamaður, en Árni varði vel í horn. Úr horninu átti Gunnar Vatnhamar skalla sem Árni varði.

Skagamenn náðu ekki að skapa sér færi til að jafna metin á lokakaflanum og Víkingar nýttu alla sína reynslu til að sigla sigrinum heim tiltölulega örugglega þrátt fyrir aðeins eins marks mun.

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA fékk rauða spjaldið í uppbótartímanum og er því á leið í leikbann.

Víkingur R. 2:1 ÍA opna loka
90. mín. 4 mínútum bætt við
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »