Gamla ljósmyndin: Vestfirðingar í Víkingi

Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Vestri og Víkingur R. eigast við í toppslag í efstu deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu á fimmtudaginn. Liðin eru í 1. og 2. sæti en hafa þó ekki leikið nema átta leiki. 

Mikil tengsl hafa verið á milli þessara liða þótt langt sé á milli í kílómetrum. Alla vega þegar skoðað er hversu margir leikmenn hafa leikið með báðum liðum. 

Ísfirðingurinn Matthías Vilhjálmsson er einn reyndasti maðurinn í Víkingsliðinu og Jón Guðni Fjóluson er ættaður úr Bolungarvík og á þar stóran frændgarð [en á líklega einungis örfáa leiki í yngri flokkum með Bolvíkingum.] Daði Berg Jónsson er ættaður úr Súðavík og blómstrar með Vestra í sumar en hann er einmitt í láni frá Víkingi. Arnór Borg Guðjohnsen er einnig á láni hjá Vestra og lék með Víkingi um tíma. 

Merkilegt má telja að þrír bræður frá Ísafirði leikið fyrir Víking í efstu deild: Jóhann, Ómar og Örn Torfasynir. Víkingar nýttu sér krafta fleiri Ísfirðinga á árum áður eins og Atla Einarssonar sem var í stóru hlutverki í Íslandsmeistaraliðinu 1991. Þá á Örnólfur Oddsson leiki með Víkingi í efstu deild. 

Strandamaðurinn Magnús Ólafs Hansson lék í mörg ár með Bolungarvík og á leiki með Víkingi í efstu deild. Bolvíkingurinn Andri Rúnar Bjarnason var hjá Víkingi um tíma eða áður en hann jafnaði markametið með Grindavík. 

Baráttujaxlinn Sigurður Sighvatsson úr Víkingi fór vestur og lék með BÍ á tíunda áratugnum. Þá var Selfyssingurinn Ámundi Sigmundsson spilandi þjálfari BÍ en hann hafði einmitt einnig leikið með Víkingi. Af fleirum sem leikið hafa bæði með Víkingum og Vestfirðingum má nefna bæjarstjórann í Hveragerði, Pétur Markan.  

Við þetta má svo bæta að dæmi eru um erlenda leikmenn sem leikið hafa bæði fyrir vestan og í Fossvoginum. 

Nær öruggt er að þessi upptalning er ekki tæmandi en gefur ágæta mynd. 

Á meðfylgjandi mynd eru þeir Ómar Torfason og Örnólfur Oddsson í leik með Víkingi á Akranesi á Íslandsmótinu árið 1984.

Landsliðsmaðurinn Árni Sveinsson er um það bil búinn að þruma knettinum í netið hjá Víkingi með sínum beitta vinstri fæti. Ómar pressaði Árna en það var ekki nóg. Örnólfur er vondaufur á svip þegar hann horfir á eftir boltanum eins og markvörðurinn Ögmundur Kristinsson sem hafði kýlt fyrirgjöf Harðar Jóhannessonar út í teiginn. 

Fyrir aftan markið var ljósmyndarinn kunni Friðþjófur Helgason vel staðsettur og náði myndinni fyrir Morgunblaðið. 

Víkingur hafði betur í leiknum 3:2 og skoraði Ómar eitt markanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »