Best í sjöttu umferðinni

Freyja Karín Þorvarðardóttir er næstmarkahæst í deildinni.
Freyja Karín Þorvarðardóttir er næstmarkahæst í deildinni. mbl.is/Eyþór Árnason

Freyja Karín Þorvarðardóttir sóknarmaður Þróttar var besti leikmaðurinn í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta, að mati Morgunblaðsins.

Freyja átti mjög góðan leik þegar Þróttur vann FH á sannfærandi hátt, 4:1, í viðureign liðanna í öðru og þriðja sæti deildarinnar á Þróttarvellinum en hún skoraði tvö marka liðsins og fékk tvö M í einkunn hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína.

Freyja Karín er 21 árs gömul, uppalin hjá Þrótti í Neskaupstað og lék með FHL í yngri flokkunum. Hún hóf að spila með meistaraflokki 15 ára gömul og árin 2020 og 2021 skoraði hún 29 mörk í 26 leikjum með FHL og varð 2. deildarmeistari með liðinu haustið 2021.

Í kjölfarið fór hún suður og í annað Þróttarlið, í Reykjavík, þar sem hún leikur nú sitt fjórða tímabil í Bestu deildinni.

Nánar um Freyju Karínu á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag og þar má einnig sjá úrvalslið 6. umferðar Bestu deildar kvenna. Efnið er einnig aðgengilegt í appinu Mogginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »