Anna Wintour, ritstjóri ameríska Vogue, hefur yfirgefið stöðu sína hjá tímaritinu eftir 37 ár. Wintour mun þó enn gegna hlutverki sínu sem ritstjóri yfir öllu efni hjá Conde Nast og sem alþjóðlegur ritstjóri Vogue. Nú leitar tímaritið að arftaka hennar hjá ameríska Vogue.
Þessi breyting er í takt við þær breytingar sem fyrirtækið hefur verið í undanfarin ár en tímaritið innleiddi breytingar á ritstjórnaruppbyggingu um allan heim og sameinaði teymi um allan heim.
Hlutverk Wintour hefur stækkað á síðustu árum með þessum breytingum. Nú hefur hún umsjón yfir öll vörumerki Condé Nast á heimsvísu, sem eru til dæmis Wired, Vanity Fair, GQ, AD, Condé Nast Traveler, Glamour, Bon Appétit, Tatler, World of Interiors og Allure.
Wintour hefur verið lykilmanneskja í heimi tískunnar um áratugi. Í kvikmyndinni The Devil Wears Prada var hlutverk Meryl Streep sem hinn beinskeytti ritstjóri byggt á Wintour.
Það verður spennandi að fylgjast með hver tekur við hlutverki hennar hjá ameríska Vogue.