Þegar nokkrir dagar eru liðnir af júnímánuði verður að fara að huga að sumarlegri klæðnaði, því að þegar góða veðrið mætir viltu verja deginum utandyra en ekki inni í verslunum.
Það er eitt stuttbuxnasnið sem kemur til með að vera mjög áberandi yfir sumarmánuðina. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þetta snið skýtur upp kollinum heldur hefur það verið vinsælt síðustu ár. Nú er hins vegar tíminn til að stökkva á vagninn ef þú hefur ekki nú þegar fjárfest í buxum með þessu sniði.
Sniðinu fylgja margir kostir; það er hægt að nota stuttbuxurnar við fínni tilefni því að sniðið er virðulegra en gengur og gerist og klæðir flesta. Síddin á buxunum er rétt fyrir ofan hné og eru skálmarnar víðar.
Nafnið á stuttbuxunum er kennt við Bermúdaeyjar í Atlantshafi. Talið er að þær hafi verið vinsæll kostur upphaflega fyrir karlmenn á þeim dögum þegar það þótti of heitt úti fyrir fínni buxur. Þeir klæddust buxunum við hnéháa sokka, fína skyrtu, bindi og jakkafatajakka. Síðar urðu þær vinsælar á meðal kvenna og barna og voru notaðar í fríum á suðrænum slóðum.
Langflestar útgáfur í verslunum núna eru háar í mittið og líkjast dragtarbuxum. Einnig er hægt að finna mjög flottar útgáfur í gallaefni. Það besta við þessar buxur er að þú þarft lítið að hugsa út í aðrar flíkur. Það eina sem þarf er lítill hvítur hlýrabolur og dragtarjakki til að fullkomna útlitið. Einnig má nota þær við stutta gallajakka fyrir afslappaðri tilefni. Þær fara vel með mínímalískum hælaskóm, sandölum og jafnvel strigaskóm. Í mörgum tilvikum er hægt að fá skyrtu eða jakka í stíl í sama efni og þá ertu komin með föt sem þú getur gripið í á öllum þeim góðviðrisdögum sem eftir eru.