Þessar buxur verða aðalmálið í sumar

Þú verður að eignast svona buxur fyrir sumarið.
Þú verður að eignast svona buxur fyrir sumarið.

Víðar hörbuxur verða út um allt í sumar, stíliseraðar með lágum látlausum hælaskóm, strigaskóm eða sandölum. Kosturinn við þessa flík er þægindin því þær eru nánast eins og náttbuxur. Buxurnar er hægt að nota við afslappaðri tilefni og helst þegar sólin skín. 

Buxur sem þessar passa vel við skyrtu í sama efni og lit, litla stuttermaboli og töff sólgleraugu. Flestir litir ganga upp í þessum stíl en í verslunum núna er mikið af ljósbrúnum, hvítum, ólífugrænum og ljósbláum lit.

Hörefni fylgja margir kostir. Það er sterkt efni og þornar hraðar en bómull. Það er mjög oft notað við sumarfatnað vegna þess hversu vel það andar. Hör vex hægar en bómull og er þess vegna dýrara efni en einnig vegna þess að það er erfiðara að vefa það. Það er mjög mikið til af flíkum í dag úr hörblöndu og er því þá oft blandað við bómull eða önnur gerviefni. Hör krumpast en þegar hör á í hlut þykir það ekki galli heldur eykur við afslappað útlit flíkinnar.

Hvítar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og …
Hvítar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og kosta 44.990 kr.
Koníaksbrúnar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og …
Koníaksbrúnar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og kosta 44.990 kr.
Hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Galleri Sautján og kosta …
Hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Galleri Sautján og kosta 19.995 kr.
Buxur frá Selected sem kosta 13.995 kr.
Buxur frá Selected sem kosta 13.995 kr.
Ólífugrænar hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Karakter og kosta …
Ólífugrænar hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Karakter og kosta 19.995 kr.
Hörbuxur skreyttar steinum frá Zöru sem kosta 15.995 kr.
Hörbuxur skreyttar steinum frá Zöru sem kosta 15.995 kr.
Röndóttar hörbuxur frá Zöru sem kosta 7.995 kr.
Röndóttar hörbuxur frá Zöru sem kosta 7.995 kr.
Hvítar buxur frá Gestuz, fást í Andrá og kosta 24.990 …
Hvítar buxur frá Gestuz, fást í Andrá og kosta 24.990 kr.
Ljósbláar hörbuxur frá Ralph Lauren, fást í Mathildu og kosta …
Ljósbláar hörbuxur frá Ralph Lauren, fást í Mathildu og kosta 29.990 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »