María Margrét Jóhannsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is og Ragnar Jónasson rithöfundur og lögfræðingur eru farin hvort í sína áttina eftir 20 ára samband. Þar af 10 ára hjónaband.
María Margrét og Ragnar höfðu nýlega fest kaup á glæsihúsi við Sólvallagötu sem lítur út eins og kastali. Garðurinn í kringum húsið tók miklum breytingum eftir að þau festu kaup á húsinu enda María Margrét með græna fingur.
Hjónin voru áberandi í menningarlífi borgarinnar. Hún sem sérfræðingur á myndlistarsviðinu og hann á sviði glæpasagnanna en bækur hans hafa selst vel bæði hérlendis og erlendis.
Smartland óskar hjónunum góðs gengis!