Vellíðunarhormón hveitibrauðsdaganna veita sömu sælu og kókaín

Sælan er oft mest í byrjun sambandsins.
Sælan er oft mest í byrjun sambandsins. Darren Lawrence/Unsplash

Hveitibrauðsdagar lýsa þessu ljúfa tímabili snemma í sambandinu þegar allt er svo rómantískt, spennandi og áreynslulítið. Í nýrri grein í tímaritinu Vogue er kafað í hveitibrauðsdaga.

Fjölskylduráðgjafinn Pat Bathurst segir fólk verði oft mjög hrifið í upphafi sambands og að líkamlegt aðdráttarafl sé mjög mikið. Þetta stig sambandsins er ekki einungis draumkennd sæluvíma heldur er það einnig líffræðilegt. Vellíðunarhormón eins og oxytósín og dópamín eru virkjuð í heilanum, þau sömu og kókaín örvar. Þessi náttúrulega víma lætur fólk laðast hvort að öðru.

Sambandsráðgjafinn Sara Miller segir að fólk blindist af hrifningunni og sjái oft ekki vanvirk mynstur í sambandinu, rauð flögg séu jafnvel hunsuð.

Þegar fyrsta rifrildið byrjar gætu hveitibrauðsdagarnir verið á enda.
Þegar fyrsta rifrildið byrjar gætu hveitibrauðsdagarnir verið á enda. Vitaly Gariev/Unsplash

Endast ekki að eilífu

Líkt og fram kemur í greininni segja sérfræðingar að hveitibrauðsdagarnir geti lifað í nokkrar vikur og upp í tvö ár.

„Frá taugalífeðlisfræðilegu sjónarhorni vara hveitibrauðsdagarnir í um sex mánuði, þegar mesta virkni er í kerfinu og vellíðunarhormónar eru í hámarki.“

Þegar sambandið kemst yfir byrjunarstigið fer fólk að skoða raunverulegar áskoranir á meðan það kynnist betur og ósíaðar hliðar þess koma betur í ljós. Hveitbrauðsdagarnir eru væntanlega á enda þegar fyrsta rifrildið byrjar, þegar pirrandi ávanar koma í ljós eða þegar tekið er eftir vanvirkri hegðun.

„Vellíðunarhormón eins og oxytósín og dópamín eru virkjuð í heilanum, …
„Vellíðunarhormón eins og oxytósín og dópamín eru virkjuð í heilanum, þau sömu og kókaín örvar.“ Colin Davis/Unsplash

Annað merki? Jú, þegar þið hafið ekki lengur þörf fyrir að rífa hvort annað úr fötunum hvar og hvenær sem er.

Hveitibrauðsdagarnir endast ekki að eilífu enda væri það þreytandi, bæði andlega og líkamlega, segir Bathurst.

Að upplifa vandamál í sambandinu þýðir ekki að fólk sé hætt að vera ástfangið, miklu frekar að sambandið sé að þróast og einstaklingarnir með. Þannig getur endir hveitibrauðsdaganna verið byrjunin á einhverju nýju og betra.

Vogue

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »