Hvernig má komast úr herbergisfélaga-gírnum?

Sambönd missa oft sjarmann við það að búa lengi saman.
Sambönd missa oft sjarmann við það að búa lengi saman. mbl.is/Thinkstockphotos

Þegar fólk hefur verið lengi í sambandi er hætt við að það upplifi samlífið líkt og herbergisfélagar. Jean Smith er mannfræðingur og sérfræðingur í daðri og hefur lagt áherslu á að hjálpa fólki að finna aftur neistann. Hún deilir reynslu sinni í pistli á vefritinu The Stylist.

„Eftir því sem líður lengra á sambandið minnkar þörfin til að ganga í augun á makanum. Daðursöm skilaboð lúta í lægra haldi fyrir snaggaraleg og litlaus skilaboð um að það vanti meiri klósettpappír eða hvað þá heldur. Þá fer fólk sjaldnar á stefnumót og hangir bara í sófanum heima að horfa á Netflix.“

„Fyrr en varir fer fólki að líða eins og vinum sem deila saman íbúð frekar en rómantísku pari. Þetta á sér margar útskýringar og er algengara en halda mætti. Í langtímasamböndum breytist sýn manns á makann. Hversdagsleikinn fær mann til þess að gleyma afhverju maður varð hrifinn af manneskjunni til að byrja með og maður tekur þá sem gefnum hlut.“

„Þegar við erum einhleyp þá leggjum við okkur fram með útlitið og skipuleggjum spennandi hluti saman. En með tímanum hættum við því. Hvað þá ef börn bætast við þá er enn auðveldara að missa sjónar á sambandinu.“

Hvað gerðuð þið á laugardagskvöldum?

„Þetta snýst um hvernig maður ver tíma sínum. Ég heyri fólk segja að það hætti í sambandinu því neistinn var farinn. Þá spyr ég á móti, hvað gerðuð þið á laugardagskvöldum? Ef það var bara fyrir framan sjónvarpið í náttfötunum þá er ekki að undra að illa hafi farið.“

„Eðlilegt er að ástríðan dofni með tímanum en það er mikilvægt að muna að það var neistinn sem dró ykkur saman til að byrja með. Það er því mikilvægt að reyna að halda í hann. Besta leiðin er að halda áfram að daðra.“

„Daður er ekki bara fyrir þá sem eru að hefja samband. Öll pör ættu að daðra saman. Það sýnir að þú hafir áhuga á manneskjunni og finnst hún æði. Daður leysir úr læðingi vellíðunarhormón og lætur báðum aðilum líða vel. Og þó að það krefjist skipulags eins og að setja áminningu í símann um að daðra eða kaupa blóm, þá er það þess virði.“

„Það besta við daðrið er að það kemur boltanum af stað. Því meira sem maður daðrar því líklegra er að makinn taki undir með þér sem fær þér til þess að líða enn betur og þannig hleðst þetta upp. Þetta er eins og að fylla á tankinn. Þegar tankurinn er fullur eru meiri líkur á að þið hlustið á hvort annað eða hjálpist að með verkefnin á heimilinu.“

„Það að daðra minnir okkur á að við erum kynverur en líka áhugavert og skemmtilegt fólk. Það færir mann sjálfsöryggi.“

Hvernig á að daðra við makann?

  • Nýta sér þekkinguna „Að daðra við makann krefst annarrar tækni en við ókunnugan á bar. Farðu í fötin sem þú veist að makinn elskar og eldaðu uppáhaldsmatinn. Nýttu þér það hversu vel þið þekkist. Hvað líkar honum? Finnst honum gott að fá hrós eða vill hann mikla snertingu og líkamlega nánd? Gæðastundir eða einhver viðvik?“
  • Búðu til huggulegt umhverfi því það skapar réttu stemminguna og auðveldar allt daður.
  • Ef það er langt síðan þið voruð að daðra þá er mikilvægt að velja réttu stundina. Ekki yfir uppvaskinu. Verið bæði afslöppuð og með hugann við annað en verkefni dagsins. Farið út í drykk til að létta á andrúmsloftinu.
  • Hrósið hvort öðru. Best er að byrja daðri á hrósi og þá er áhrifaríkast að hrósa útlitinu og draga fram það sem þér líkar í fari þeirra.
  • Grín - það er gott að grínast saman, það veitir vellíðan og er öflug leið til þess að tengjast.
  • Opin líkamstjáning. Þú sýnir áhuga með því að beina mjöðmum og öxlum beint að þeim.
  • Snerting. Strjúktu létt yfir handarbakið eða niður eftir bakinu.
  • Athygli. Það er auðvelt að láta hugann reika á meðan makinn er að tala. Að veita honum fulla athygli er hins vegar mjög öflugt tól til þess að gefa til kynna áhuga sinn.
  • Nánd. Að sitja nærri hvort öðru er augljós en áhrifarík leið til þess að tengjast.
  • Augnsamband. Haltu augnsambandi þó það virki kannski full mikið af því góða. Þannig myndarðu tengsl. Teldu upp að þremur ef þú ert í vafa um hvað telst hæfileg lengd.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »