Vilhjálmur Árnason alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins og eiginkona hans, Sigurlaug Pétursdóttir flugfreyja buðu í sumargleði heim til sín. Hjónin fögnuðu því að ár var frá því að þau fluttu í Reykjanesbæ en þau neyddust til þess að yfirgefa heimili sitt í Grindavík vegna náttúruhamfara.
Hjónin hafa komið sér vel fyrir í fallegu húsi við Lyngmóa í Njarðvík og þar sem húsið er vel búið til veisluhalda ákváðu þau að bjóða vinum og félögum í mat og drykk. Veisluborðin svignuðu af kræsingum og stemningin var eftir því.
Hjónin buðu um 200 manns í teitið og var ekki þverfótað fyrir Sjálfstæðismönnum. Jens Garðar Helgason varaformaður flokksins lét sig ekki vanta og heldur ekki Árni Sigfússon fyrrverandi bæjarstjóri. Þar var líka Þengill Björnsson viðskiptamógúll í Dubai en hann er oft kallaður til þegar vinna á stórsigur í pólitík.
Magnús Sverrir Þorsteinsson auðmaður og forstjóri bílaleigunnar Blue Car Rental, oftast kallaður „Maggi Blue“, lét sig ekki vanta. Fjallað hefur verið um hann reglulega á Smartlandi en hann keypti þakíbúð auðmannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar á dögunum á 360.000.000 kr.
Ari Elíasson, eigandi Sporthússins í Reykjanesbæ, Ingvar Eyfjörð, fjárfestir og eigandi Courtyard-hótelsins við Keflavíkurflugvöll, sem er hluti af Marriott-keðjunni, Jóna Hrefna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá HS Veitum, Heba Lind Guðmundsdóttir, fjallkona Suðurnesjabæjar og Sævar Sævarsson, lögfræðingur og körfuboltasérfræðingur létu sig ekki vanta. Knattspyrnukempan og markakóngurinn, Guðmundur Steinarsson, sem lék árum saman með Keflavík og á að baki glæsilegan feril í íslenskum fótbolta, rak inn nefið.
Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum og Rósa Guðbjartsdóttir, alþingismaður voru í stuði og líka tónlistarmaðurinn Róbert Andri, kærasti söngkonunnar Diljár Pétursdóttur. Hann tók upp gítarinn, þar sem hann tryllti lýðinn með kraftmikilli tónlist sem setti punktinn yfir i-ið á vel heppnaðri veislu.
Stjörnuljósmyndarinn Håkon Broder Lund tók þessar glæsilegu ljósmyndir sem fönguðu stemninguna. Eitt er víst; Vilhjálmur og Sigurlaug kunna að halda partí.