Jón Gunnar, Gurrý og Ásgeir fögnuðu afmæli Valhallar

Það var einstök stemning á afmælisfögnuði Valhallar.
Það var einstök stemning á afmælisfögnuði Valhallar. Samsett mynd

Það var heldur betur glatt á hjalla þegar Valhöll fasteignasala fagnaði 30 ára afmæli sínu síðastliðinn föstudag. Um 200 manns mættu í afmælisveisluna sem var haldin í glæsilegum húsakynnum Valhallar í Síðumúla 27.

Meðal gesta voru athafnamennirnir Ásgeir Kolbeinsson og Jón Gunnar Geirdal, sem ásamt fleirum gæddu sér á gómsætum veitingum og fljótandi veigum.

„Það var mjög gaman að taka á móti öllum þessum góðu afmælisgestum og finna að fólk hugsi svona hlýtt til Valhallar á þessum skemmtilegu tímamótum. Það stendur mikið til á afmælisárinu og við nýir eigendur ákváðum að halda myndarlega afmælisveislu ásamt því að vinna að ýmsum spennandi breytingum á rekstri Valhallar, þar á meðal kynningu á nýju lógói Valhallar og nýrri og glæsilegri heimasíðu.

Vonandi falla breytingarnar viðskiptavinum Valhallar vel í geð og við getum látið sól fyrirtækisins skína sem aldrei fyrr,“ segir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali og annar eigandi Valhallar.

Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, eigendur Valhallar.
Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, eigendur Valhallar. Ljósmynd/Aðsend

„Valhöll var fljót að stimpla sig inn á íslenskan fasteignasölumarkað“ 

Valhöll fasteignasala var stofnuð af þeim Ingólfi Geir Gissurarsyni og Bárði Tryggvasyni í febrúar 1995. Faðir Ingólfs, Ásmundur Ólafsson, stakk upp á því að fasteignasalan yrði nefnd Valhöll en hann var mikill áhugamaður um goðafræði. Fyrstu þrjú árin hafði Valhöll aðsetur í Mörkinni 3 í Reykjavík en árið 1998 fluttist starfsemin í glæsilegt skrifstofuhúsnæði í Síðumúla 27 og hefur verið þar til húsa fram á daginn í dag.

Valhöll var fljót að stimpla sig inn á íslenskan fasteignasölumarkað og fjölgaði starfsfólkinu og verkefnunum jafnt og þétt. Valhöll var áberandi í sölu nýbygginga og mátti sjá fána með merki Valhallar blakta hátt á hinum ýmsu byggingarsvæðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu.

Þann 1. mars 2023 urðu mikil vatnaskil í rekstri Valhallar en þá tóku fasteignasalarnir og lögfræðingarnir Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen við rekstrinum. Ingólfur starfar þó áfram með nýjum eigendum ásamt öðru öflugu starfsfólki fasteignasölunnar sem margt hefur unnið þar í áraraðir. 

Ingólfur Geir Gissurarson og Pétur Freyr Pétursson.
Ingólfur Geir Gissurarson og Pétur Freyr Pétursson. Ljósmynd/Aðsend
Ásdís Ósk Valsdóttir, Lárus B. Lárusson og Sjöfn Þórðardóttir.
Ásdís Ósk Valsdóttir, Lárus B. Lárusson og Sjöfn Þórðardóttir. Ljósmynd/Aðsend
Ásta María Gunnarsdóttir og Óskar H. Bjarnasen.
Ásta María Gunnarsdóttir og Óskar H. Bjarnasen. Ljósmynd/Aðsend
Snorri Björn Sturluson og Gurrý Jónsdóttir.
Snorri Björn Sturluson og Gurrý Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Snorri Björn Sturluson, Matthildur Sunna Dan Þorláksdóttir og Helgi Guðmundsson.
Snorri Björn Sturluson, Matthildur Sunna Dan Þorláksdóttir og Helgi Guðmundsson. Ljósmynd/Aðsend
Systkinin Jón Gunnar Geirdal og Freyja Geirdal.
Systkinin Jón Gunnar Geirdal og Freyja Geirdal. Ljósmynd/Aðsend
Hera Gísladóttir og Ásgeir Kolbeinsson.
Hera Gísladóttir og Ásgeir Kolbeinsson. Ljósmynd/Aðsend
Hera Rut Hólmarsdóttir var hlutskörpust í verðmatsleik Valhallar.
Hera Rut Hólmarsdóttir var hlutskörpust í verðmatsleik Valhallar. Ljósmynd/Aðsend
Hólmgeir Elías Flosason og Sölvi Þór Sævarsson.
Hólmgeir Elías Flosason og Sölvi Þór Sævarsson. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir og Helga Lárusdóttir.
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir og Helga Lárusdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnhildur Björn Baldursdóttir, Óskar H. Bjarnasen, Hulda Hauksdóttir og Snorri …
Hrafnhildur Björn Baldursdóttir, Óskar H. Bjarnasen, Hulda Hauksdóttir og Snorri Björn Sturluson. Ljósmynd/Aðsend
Elín Alfreðsdóttir, fasteignasali hjá Valhöll.
Elín Alfreðsdóttir, fasteignasali hjá Valhöll. Ljósmynd/Aðsend
Fasteignasalarnir Kristín Einarsdóttir og Guðný Ösp Ragnarsdóttir.
Fasteignasalarnir Kristín Einarsdóttir og Guðný Ösp Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Gestir giskuðu á verð á húsi.
Gestir giskuðu á verð á húsi. Ljósmynd/Aðsend
Gylfi Þór Gylfason, Guðmundur Karl Guðmundsson og Snorri Björn Sturluson.
Gylfi Þór Gylfason, Guðmundur Karl Guðmundsson og Snorri Björn Sturluson. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »